Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir stofnaði Litlu fluguna, textílverkstæði, í Reykjavík 10. Desember 2002. Jórunn Dóra er sjálfmenntuð af áhuganum einum saman.
Unnið er aðallega með leður, skinn og fiskroð og aðalsmerki Litlu flugunnar eru vandaðar töskur af öllum stærðum og gerðum.
Auk úrvals af töskum er einnig hægt að fá skinnkraga, belti, armbönd, kjóla, peysur, slár, púða og nánast allt sem sprettur undan saumavélinni hverju sinni.